Þessir skilmálar gilda um sölu á vöru og þjónustu DATATECH EHF til neytenda. 

Skilmálarnir sem staðfestir eru með staðfestingu á kaupum, eru grunnurinn að viðskiptunum. 

Skilmálarnir og aðrar upplýsingar á www.wiimhome.is eru einungis fáanlegar á íslensku. 

Um neytendakaup þessi er fjallað um í lögum um neytendakaup, lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. 

1. Skilgreining 

Seljandi er Datatech ehf. sem rekur vefverslanirnar Wiimhome.is og Wiim.is, kennitala: 420115-0240, virðisaukaskattsnúmer 119183. Datatech ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands. 

Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla í Vefverslun DATATECH EHF. 

2. Skilaréttur 

Kaupandi getur skilað vöru keypt af seljanda innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu sé varan ónotuð og óopnuð í upprunalegum umbúðum. Við skil á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi og ónotuð.

Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Seljandi áskilur sér rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 14 daga skilarétti. 

2.1 Gildir fyrir allar vörur 

• Ábyrgðarskírteini, kaupnóta eða gjafamiði er skilyrði fyrir vöruskilum 

• Skilyrði að varan sé ónotuð 

• Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi 

• Rekstrarvörur sem fylgja vörunni þarf að endurnýja við vöruskil s.s. blekhylki, einnota rafhlöður, pappír o.s.frv. 

• Algjört skilyrði er að allir aukahlutir séu með vörunni 

• DATATECH EHF áskilur sér rétt til að prófa vöruna ef þörf krefur innan eðlilegra tímamarka 

2.2 Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum eða innsigluðum umbúðum: 

• Vörur sem eru keyptar forsniðnar, t.d. ákveðin lengd af snúrum 

4. Auglýsingavernd 

Ef vara er uppseld á meðan auglýst tilboð er í gangi útvegar seljandi hana innan eðlilegs afhendingartíma á auglýstu tilboðsverði. Þetta á ekki við um vörur sem auglýstar eru í “takmörkuðu magni”. Vörur á vefsíðu seljanda teljast ekki til auglýstra vara, enn fremur á þetta ekki við um vörur á netverði. 

5. Pöntun 

Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á vefsvæði seljanda wiimhome.is eða wiim.is. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun. 

Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. 

Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup. 

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. 

Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á. 

6. Upplýsingar 

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. 

Vöruúrval getur verið mismunandi á milli vefverslunar og verslana. 

Enn fremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni. 

7. Verð 

Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. 

Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega í vefverslun. Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. 

Nettilboð gildir eingöngu þegar vara er keypt í vefverslun www.wiimhome.is eða www.wiim.is  

8. Greiðsla 

Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu, greiðslukorti eða Netgíró. Ef greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla fyrir vefpöntun berst ekki innan 1 klukkustund, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni. Ef greitt er með bankamillifærslu er pöntun sett í tiltekt þegar millifærsla hefur verið staðfest af starfsmanni. 

Vandamál með viðskipti tengd viðskiptareikningi falla undir skilmála reiknings. 

9. Afhending og seinkun 

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. 

Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvöru ef að varan er uppseld. 

Ef óskað er eftir að geyma ósótta vöru í vöruhúsi DATATECH EHF er geymslutími að hámarki 2 vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar. 

10. Yfirferð á vörum 

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samvkæmt vörulýsingu og ógallaðar. 

Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu,. 

Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila. 

11. Réttur við galla eða vöntun 

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. 

Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 7 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. 

Réttur neytenda (með neytenda er átt við einstakling utan atvinnustarfsemi) til að fá galla bættan er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003. 

Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.  

Skilavara, sýningareintök og útlitsgallaðar vörur eru seldar sem einstök vara og við úrlausn ábyrgðar er henni ekki skipt út fyrir sambærilega vöru, heldur er eftir atvikum gefin inneignarnóta eða veitt endurgreiðsla. 

12. Ábyrgð 

Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 og miðast við kaupdagsetningu til einstaklinga utan atvinnustarfsemi. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr. 50/2000. 

Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað. 

Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. En almennur kvörtunarfrestur er 2 ár. Til að mynda er rafhlaða tækja rekstrarvara og getur þurft að endurnýja fyrir lok vélbúnaðar ábyrgðar. Framleiðandi veitir þó að lágmarki 6 mánaða ábyrgð óháð notkun á rafhlöðum (sýna þarf fram á að um galla sé að ræða sé varan eldri en 6 mánaða en ekki t.d eðlilegt slit.) Eðlilegt er að endurnýjun geti átt sér stað bilinu 6-24 mánaða. Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók skvt. 10. grein þessa skilmála. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði eða öðrum óáþreifanlegum hlutum (hlutum sem hafa áhrif á eiginleika tækisins eins og vírusar og annað sem ekki er hægt að rekja til framleiðanda). 

Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram. 

Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur. 

Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. 

13. Persónuvernd 

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. 

Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang. 

Smelltu hér til að skoða skilmála DATATECH EHF um notkun á vafrakökum. 

14. Eignarréttur 

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt. 

Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist. 

15. Úrlausn vafamála 

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu.. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda. 

16. Þjónusta og upplýsingar 

Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin á wiim@datatech.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig hringt í aðalsíma DATATECH EHF  +354- 571-9300 þar sem honum verður vísað á réttan stað. 

Scroll to Top