Vörulýsing
- Upplifðu fullkomið streymi með AirPlay 2 og Google Cast: Hljómkerfið þitt fær stóra uppfærslu! Með WiiM Pro Plus geturðu umbreytt hljómkerfinu þínu í AirPlay 2-samhæfða hátalara og streymt uppáhaldstónlistinni þinni frá iOS- og Mac-tækjum eða hljóði beint úr Apple TV tækinu þínu.. Virkar einnig með Google Cast sem gerir þér mögulegt að hlustaða á tónlist, hjóð úr sjónvarpinu, hlaðvörp og fleira í gengum endalaust úrval af smáforrittium sem styðja Google Cast í mörg mismunandi hljómtæki samstundis.
- Tónlist í há-upplausn með hnökralausu streymi: Streymdu tónlist í allt að 24-bita/192 kHz eða hæstu mögulegum upptökugæðum- þráðlaust. Njóttu tónlistarinnar án truflana í gegnum stafræna optíska (optical) útgangs eða Coax tengið (með 106dB Analog SNR) og THD+N (analog out) -92dB (0.0025%). Athugaðu að ekki allar streymisveitur bjóða upp á tónlist í há-upplausn (Hi-Res) eða 24-bita/192 kHz gæðum. Þú þarft að vera með áskrift af Amazon Music Ultra HD eða Tidal, eða nota þitt eigið tónlistarsafn til að nota fullnýtt þessa eiginleika. TIDAL áskrifendur geta notið TIDAL Max tónlistar (FLAC skráar-snið) í allt að 24-bita/192 kHz gæðum.
- Hjartað í Wiim Pro: Er tölvukubbur sem kallaður er DAC (e.Digital to Analog converter). Wiim Pro notar vandaðan Texas Instrument PCM 5121 DAC. Hann bætir hljómgæði með því að umbreyta stafrænni tónlist í slétt, náttúrulegt hliðrænt, truflanalaust hljóð sem hátalarar eða heyrnartól geta spilað. Án gæða DAC getur stafrænt hljóð hljómað gróft, flatt eða bjagað vegna lélegrar umbreytingar og tímasetningarvillna (e.jitter). PCM5121 dregur úr suði, útilokar bjögun og tryggir að öll smáatriði í tónlistinni haldist óbreytt og skili sér til þín eins og upptökustjóri tónlistarinnar ætlaði sér. Hann styður Há-upplausnarhljóð (e. high-resolution audio), sem þýðir að hann getur unnið hraðar með meira gagnamagn, sem leiðir til skýrari radda, dýpri bassa og meiri dýptar í hljóðinu. Þetta gerir tónlistina náttúrulegri, skýrari og ánægjulegri, sérstaklega þegar spilað er í gæða hátölurum eða heyrnartólum.
- Streymdu beint úr uppáhalds tónlistar appinu þínu:Streymdu tónlist beint frá Spotify, TIDAL eða Amazon Music appinu í gegnum Spotify Connect, TIDAL Connect eða Alexa cast. Þessi eiginleiki býður upp á betri hljómgæði og lengra vinnusvið heldur en hefðbundnir Bluetooth- eða AirPlay 2 móttakarar, sem einnig minnkar álag á snjallsímanum þínum þar sem WiiM spilarinn er í raun að streyma efnið beint af internetinu en ekki í gegnum snjallsímann þinn. Þessi eiginleiki virkar fyrir Spotify Free/Premium notendur. Tidal MAX og Amazon Music Ultra HD áskrifendur geta notið tónlistar (FLAC skráar-snið) í allt að 24-bita/192 kHz gæðum.
- Samfelldur hljómur í öllum rýmum: Streymdu tónlist um allt heimilið í fullkomnum samhljóm með því að nota ýmiskonar snjallhátalara sem þú mögulega átt nú þegar sem styðja við AirPlay 2, Google Cast eða Amazon Alexa. Búðu til hópa með öðrum AirPlay 2, Google Home eða Alexa tækjum eins og Echo, HomePod, eða tengdu fleiri WiiM tæki saman fyrir samstillta spilun í mörgum hljómtækjum samstundis.
- Virkar allt vandræðalaust: Notaðu WiiM Appið til að stjórna WiiM Pro tækinu. Spilaðu, gerðu hlé, slepptu lögum, hækkaðu eða lækkaðu eða stilltu á þögn á auðveldan hátt. WiiM Pro virkar einnig með Google Assistant og Siri, sem gerir þér mögulegt að stjórna tækinu með raddskipunum í gegnum símann þinn, Apple HomePod eða Google Home tæki. WiiM Pro kemur ekki með fjarstýringu eins og WiiM Pro Plus, en þú getur stýrt öllu með appinu og einnig er hægt að kaupa fjarstýringuna sér.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir til um þessa vöru