Vörulýsing
- Upplifðu fullkomið streymi með AirPlay 2 og Google Cast: Hljómkerfið þitt fær stóra uppfærslu! Með WiiM Pro Plus getur þú umbreytt hljómkerfinu þínu í AirPlay 2 samhæfða hátalara og streymt uppáhaldstónlistinni þinni frá iOS- og Mac-tækjum eða hljóði beint úr Apple TV tækinu þínu. Virkar einnig með Google Cast sem gerir þér mögulegt að hlustaða á tónlist, hjóð úr sjónvarpinu, hlaðvörp og fleira í gengum endalaust úrval af smáforrittium sem styðja Google Cast í mörg mismunandi hljómtæki samstundis.
- Tónlist í há-upplausn með hnökralausu streymi: Streymdu tónlist í allt að 24-bita/192 kHz eða hæstu mögulegum upptökugæðum- þráðlaust. Njóttu tónlistarinnar án truflana í gegnum stafræna optíska (optical) útgangs eða Coax tengið (með 121dB Analog SNR) og THD+N (analog out) -113dB (0.0023%). Athugaðu að ekki allar streymisveitur bjóða upp á tónlist í há-upplausn (Hi-Res) eða 24-bita/192 kHz gæðum. Þú þarft að vera með áskrift af Amazon Music Ultra HD eða Tidal, eða nota þitt eigið tónlistarsafn til að nota fullnýtt þessa eiginleika. TIDAL áskrifendur geta notið TIDAL Max tónlistar (FLAC skráar-snið) í allt að 24-bita/192 kHz gæðum.
- Hjartað í Wiim Pro Plus: Er tölvukubbur sem kallaður er DAC (e.Digital to Analog converter). WiiM Pro Plus notar háþróaðan hágæða AKM 4493SEQ DAC (e.Digital-to-Analog Converter). Hann bætir hljómgæði með því að umbreyta stafrænni tónlist í slétt, náttúrulegt hliðrænt (e.Analog) hljóð sem hátalarar eða heyrnartól geta spilað. Án gæða DAC getur stafrænt hljóð hljómað gróft, flatt eða bjagað vegna lélegrar umbreytingar og tímasetningarvillna (e.jitter). AKM 4493SEQ er þekktur fyrir einstaklega lága bjögun og breitt dýnamískt svið, sem tryggir mjög hreint og nákvæmt hljóð. Hann styður há-upplausnarhljóð (e. high-resolution audio), sem þýðir að hann getur unnið hraðar með meira gagnamagn án þess að erfiða, sem leiðir til skýrari radda, dýpri bassa og meiri dýptar í hljóðinu. Þetta gerir tónlistina náttúrulegri, skýrari og ánægjulegri, sérstaklega þegar spilað er í gæða hátölurum eða heyrnartólum.
- Streymdu beint úr uppáhalds tónlistar appinu þínu: Streymdu tónlist beint frá Spotify, TIDAL eða Amazon Music appinu í gegnum Spotify Connect, TIDAL Connect eða Alexa cast. Þessi eiginleiki býður upp á betri hljómgæði og lengra vinnusvið heldur en hefðbundnir Bluetooth- eða AirPlay 2 móttakarar, sem einnig minnkar álag á snjallsímanum þínum þar sem WiiM spilarinn er í raun að streyma efnið beint af internetinu en ekki í gegnum snjallsímann þinn. Þessi eiginleiki virkar fyrir Spotify Free/Premium notendur. Tidal MAX og Amazon Music Ultra HD áskrifendur geta notið tónlistar (FLAC skráar-snið) í allt að 24-bita/192 kHz gæðum.
- Samfelldur hljómur í öllum rýmum: Streymdu tónlist um allt heimilið í fullkomnum samhljóm með því að nota ýmiskonar snjallhátalara sem þú mögulega átt nú þegar sem styðja við AirPlay 2, Google Cast eða Amazon Alexa. Búðu til hópa með öðrum AirPlay 2, Google Home eða Alexa tækjum eins og Echo, Apple HomePod eða tengdu fleiri WiiM tæki saman fyrir samstillta spilun á mörgum hljómtækjum samstundis.
- Virkar allt vandræðalaust: Notaðu WiiM fjarstýringuna til að stjórna tækinu þínu með raddskipunum í gegnum Alexa, án þess að þurfa annað Alexa tæki. Spilaðu, gerðu hlé, slepptu lögum, hækkaðu eða lækkaðu eða stilltu á þögn á auðveldan hátt með annaðhvort fjarstýringunni eða Appinu. WiiM Pro Plus virkar einnig með Google Assistant og Siri, sem gerir þér mögulegt að stjórna tækinu með raddskipunum í gegnum símann þinn, Apple HomePod eða Google Home tæki.