Vörulýsing
-
- Hágæða magnari með “Audiophile” íhlutum fyrir kröfuharða: WiiM Amp Pro magnarinn er fullkomnasti streymismagnarinn okkar hingað til, með PFFB (e.Post Filter Feedback) tækni sem í einföldu máli tekur hluta af hljóðinu eftir að það hefur farið í gegnum síu og sendir það aftur inn í magnarann. Með því að gera þetta getur magnarinn leiðrétt villur eða bjögun sem kunna að hafa komið fram í síunni eða hátalaranum, sem leiðir til hreinna og betra hljóðs.
- Hjartað í Wiim Amp Pro: Er annarsvegar TI TPA3255 Class‑D magnari sem notar PurePath™ Ultra-HD tækni sem tryggir lága bjögun og breiða tíðnisvörun. Hann skilar 60W á hverri rás fyrir 8 ohm, og 120W á hverja rás fyrir 4 ohm og hinsvegar ESS ES9038 Q2M hágæða DAC (digital to analog converter), sem er sá sami og við notum í vinsælustu vörunni okkar WiiM Ultra fyrir kristaltær hljómgæði. Einnig er býr hann yfir einstakri kælieiningu úr kopari, ál og graphene til að tryggja að þú getir spilað tónlist hnökralaust tímunum saman.
- Virkar með venjulegum hátölurum án magnara: Tengdu allar gerðir af hátölurum við magnarann með venjulegum banana tengjum eða koparvír beint.
- Fjölmargir tengimöguleikar: Tengdu sjónvarpið með HDMI ARC tenginu til að njóta óviðjafnanlegrar hljómgæða sem mun lyfta hlustunarupplifun þinni á nýjar hæðir. Tengi fyrir bassabox ásamt nýjustu Wi-Fi 6 og Bluetooth 5.3 með tveimur loftnetum, sem tryggir örugga tengingu ásamt USB tengi fyrir tónlist á flökkurum eða minnislyklum eða til að nota sem stafrænt hljóðúttak og streyma í önnur tæki.
- Virkar allt vandræðalaust: Stýrðu öllu með WiiM Home appinu. Streymdu frá öllum helstu streymisveitum og stjórnaðu kerfinu þínu vandræðalaust, herbergi fyrir herbergi. Stilltu hljóðstyrk, samstilltu hátalara, vistaðu eftirlæti, stilltu vekjara og breyttu stillingum — allt á einum stað. Viltu frekar nota gamla tónlistar appið þitt? Ekkert mál, spilaðu beint úr því. Styrðu honum með raddskipunum hvort sem þú ert að nota Alexa eða Google Assistant þá er það ekkert mál með raddfjarstýringunni sem fylgir með.
- Töfrandi heimabíó án fyrirhafnar: Gerðu afþreyinguna enn betri með HDMI ARC tenginu við sjónvarpið þitt. Njóttu kraftmikils steríó hljóms fyrir kvikmyndir, þætti og tölvuleiki. Aðlagaðu hljóm upplifunina með sérsniðnum EQ stillingum. Bættu við bassaboxi til að bæta við mögnuðum bassa eins og í kvikmyndahúsum. WiiM Amp Pro tryggir að heimabíóið þitt sé bæði öflugt og einfalt, með fyrirhafnar lausum og framúrskarandi hljómgæðum.
- Samfelldur hljómur í öllum rýmum: Skapaðu samræmdan hljóm á heimili þínu með WiiM Amp ásamt Google Home, Amazon Echo og öðrum WiiM tækjum. Með notendavænu WiiM Home appinu getur þú stjórnað tónlistarstreyminu um allt heimilið – stjórnað hljóðstyrk, samstillt hátalara, vistað uppáhalds lög, stillt vekjara og aðlagað stillingar – allt á einum stað.
- Tónlist í há-upplausn með hnökralausu streymi: Streymdu tónlist í allt að 24-bita/192 kHz eða hæstu mögulegum upptökugæðum- þráðlaust frá streymisþjónustum á borð við Spotify, Amazon Music, TIDAL eða úr þínu eigin tónlistarsafni. Athugaðu að ekki allar streymisveitur bjóða upp á tónlist í há-upplausn (Hi-Res) eða 24-bita/192 kHz gæðum. Þú þarft að vera með áskrift af Amazon Music Ultra HD eða Tidal, eða nota þitt eigið tónlistarsafn til að nota fullnýtt þessa eiginleika. Tidal og Amazon Music Ultra HD áskrifendur geta notið tónlistar (FLAC skráar-snið) í allt að 24-bita/192 kHz gæðum.
- Njóttu hnökralausrar spilunar og framúrskarandi hljómgæða: Aðlagaðu hljóminn með appinu með háþróuðum herbergis– og EQ stillingum sem eru sérsniðnar að þínu rými.
- ATHUGIÐ: WiiM Amp Pro styður ekki við AirPlay og getur ekki virkað sem AirPlay móttakari. Það gerir hinsvegar WiiM Amp, WiiM Pro, WiiM Pro Plus og WiiM Mini.
Hvað er í kassanum?
- WiiM Amp Pro magnari og tónlistarstreymir (1 stk)
- Bluetooth fjarstýring með raddstýringu (AAA rafhlöður fylgja ekki)
- Leiðbeiningar, 100-240V AC rafmangskapall
- HDMI kapall (1.5m)
Við sendum ókeypis á næsta móttökustað Dropp
Niðurhal
Umsagnir
Það eru engar umsagnir til um þessa vöru